Willum nýr fjórði varaforseti

Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var í dag kjörinn nýr fjórði varaforseti Alþingis án atkvæðagreiðslu þar sem ekki var farið fram á hana.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, lýsti Willum fyrir vikið rétt kjörinn fjórða varaforseta þingsins í stað Þórunnar Egilsdóttur samflokksmanns Willums.

Þórunn greindi frá því á dögunum að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein og þyrfti því að draga sig út úr þingstörfum á meðan hún gengist undir meðferð við meininu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert