Malbikað fyrir 1,4 milljarða

Malbikað verður fyrir 1,4 milljarða króna á þessu ári.
Malbikað verður fyrir 1,4 milljarða króna á þessu ári. Ljósmynd/Aðsend

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við malbikun á þessu ári. Til stendur að malbika 35 kílómetra af götum borgarinnar sem mun kosta rúmar 1.400 milljónir króna.

Það eru um 8,5% af heildarlengd gatna í borginni.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg verið í miklu malbikunarátaki en á árunum eftir hrun var dregið úr malbikun til að mæta efnahagsástandinu.

Í fyrra var malbikað fyrir rúmlega tvo milljarða sem var met en þá var lagt malbik á 9,4% gatnakerfisins í borginni. Ef árlega eru endurnýjuð um 6% af heildarlengd gatnakerfisins er það í jafnvægisástandi.

Bæði er um að ræða malbikun yfirlaga sem og endurnýjun með fræsingu og malbikun.

Kort sem sýnir malbikunarframkvæmdir í borginni á árinu.
Kort sem sýnir malbikunarframkvæmdir í borginni á árinu. Kort/Reykjavíkurborg

Þá verður einnig unnið við hefðbundnar malbiksviðgerðir í sumar og er kostnaður við þær áætlaður 205 milljónir króna.

Samkvæmt fjárhagsáætlun 2018-2022 er gert ráð fyrir 6.120 milljónum króna til endurnýjunar á malbiksyfirlögum auk hefðbundinna malbiksviðgerða, að því er segir í tilkynningunni.  

Að auki verða götur sem til stendur að endurnýja í miðborginni malbikaðar, m.a. Frakkastígur og vestasti hluti Hverfisgötu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert