Spáð er sunnan og suðvestan 5 til 13 metrum á sekúndu á landinu í dag með morgninum og slyddu eða snjókomu með köflum en bjartviðri um landið norðaustanvert síðdegis.
Hlýnar lítillega í veðri.
Vestlægari átt verður í nótt og víða dálítil él en hægari og úrkomuminna seint á morgun.
Víða verður frostlaust með ströndinni en annars vægt frost.