Ráðherra vill taka á kennitöluflakki

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir atvinnuvegaráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir atvinnuvegaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp sem ætlað er að stemma stigu við misnotkun á hlutafélagaforminu og er þar kennitöluflakk í atvinnurekstri fyrst og fremst undir. Í því er að finna tillögur um að hægt verði að úrskurða einstaklinga í atvinnurekstrarbann í allt að þrjú ár með dómi.

Í frumvarpinu, sem er nú í samráðsgáttinni, eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignastofnanir sem stunda atvinnurekstur. 

Fram kemur að tillögurnar í frumvarpinu séu þríþættar.

Fyrst sé að nefna tillögu um breytingu á lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignastofnanir sem stunda atvinnurekstur, um að hert verði á hæfisskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra slíkra félaga og stofnana, sem og útibússtjóra hlutafélaga og einkahlutafélaga. Einnig er lagt til að sambærileg skilyrði og gilda um stjórnarmenn hlutafélaga og einkahlutafélaga gildi einnig um þá sem fengið hafa prókúruumboð í slíkum félögum og stofnunum.

Í öðru lagi er lagt til að heimild ráðherra samkvæmt lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, til að krefjast skipta á búi slíkra félaga, verði færð til hlutafélagaskrár.

Í þriðja lagi er í frumvarpinu að finna tillögur um að hægt verði að úrskurða einstaklinga í atvinnurekstrarbann í allt að þrjú ár með dómi hafi viðkomandi gerst sekur um brot sem varða við 262. gr. almennra hegningarlaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert