Leiðakerfisbreytingar Strætó 26. og 27. mars

26. mars: Leiðir 5 og 15 aka Barónsstíg – Bann …
26. mars: Leiðir 5 og 15 aka Barónsstíg – Bann við bifreiðastöðum á hluta Barónsstígs. Kort/Strætó

Þann 26. og 27. mars taka leiðakerfisbreytingar hjá Strætó gildi vegna framkvæmda NLSH við Gömlu-Hringbraut. Tafir á framkvæmdum hafa seinkað leiðakerfisbreytingunum, en þær áttu upphaflega að taka gildi í byrjun janúar. Gert er ráð fyrir því að leiðakerfisbreytingin verði í gildi yfir næstu sex ár meðan á framkvæmdum stendur. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

26. mars: Leiðir 5 og 15 aka Barónsstíg – Bann við bifreiðastöðum á hluta Barónsstígs

Frá og með þriðjudeginum 26. mars 2019 munu leiðir 5 og 15 aka nýja leið til þess að komast milli Gömlu-Hringbrautar og Snorrabrautar.

Á leið vestur: Vagnarnir aka frá Hlemmi, inn á Snorrabraut og beygja inn Egilsgötu og Barónsstíg á leið sinni að Gömlu-Hringbraut. Nýjar biðstöðvar á leið vestur í átt frá Hlemm eru : Egilsgata/Barónsstígur, Barónsstígur/Landspítalinn og BSÍ/Landspítalinn.

Á leið austur: Vagnarnir beygja inn á Barónsstíg og aka niður Bergþórugötu og inn á Snorrabraut á leið sinni á Hlemm. Nýjar biðstöðvar á leið austur í átt að Hlemm eru: BSÍ/Landspítalinn, Barónsstígur/Landspítalinn og Barónsstígur/Egilsgata.

Þá er vaktin athygli er vakin á því, að til að tryggja aðgengi strætó um Barónsstíg hafi verið lagt bann við bifreiðastöðum við austurkant Barónsstígs milli Eiríksgötu og Laufásvegar. Starfsmönnum LSH er bent á að leggja alls ekki á þessu svæði því það hindrar för strætó um Barónsstíg.

Þessi breyting tekur gildi á morgun. 

27. mars: Strætóvegur milli Vatnsmýrarvegs og Gömlu-Hringbrautar.
27. mars: Strætóvegur milli Vatnsmýrarvegs og Gömlu-Hringbrautar. Kort/Strætó

27. mars: Strætóvegur milli Vatnsmýrarvegs og Gömlu-Hringbrautar

Leiðir 1, 3 og 6 munu aka nýjan strætóveg milli Vatnsmýrarvegs og Gömlu-Hringbrautar á leið sinni til og frá Hlemmi. Biðstöðvarnar Landspítalinn og BSÍ sameinast í biðstöðina BSÍ/Landspítalinn.

Stefnt er að malbikun strætóvegarins á morgun, þriðjudaginn 26. mars. Leiðir 1,3 og 6 munu síðan hefja akstur um veginn miðvikudaginn 27. mars 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert