Mislingafaraldurinn líklega stöðvaður

Bólusetning gegn mislingum. Börn verða bólusett aftur samkvæmt fyrri áætlun …
Bólusetning gegn mislingum. Börn verða bólusett aftur samkvæmt fyrri áætlun við 18 mánaða og 12 ára aldur. mbl.is/Hari

Liðnar eru 3 vikur frá síðasta hugsanlega smiti og telur sóttvarnalæknir að líklegast hafi tekist að stöðva faraldurinn að þessu sinni. Fjórir einstaklingar hafa greinst með staðfesta mislinga og þrír aðrir með svokallað væga mislinga („modified measles“), en það eru bólusettir einstaklingar sem hafa komist í tæri við smitaðan einstakling. Þessir einstaklingar fá vanalega væg einkenni og smita ekki aðra. Einnig hafa nokkrir einstaklingar greinst með væg mislingalík einkenni í kjölfar bólusetninga en slík einkenni eru ekki alvarleg og þessir einstaklingar smita ekki aðra. Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis. 

Börn verða bólusett aftur samkvæmt fyrri áætlun við 18 mánaða og 12 ára aldur. Ekki er talin ástæða nú til að bólusetja börn yngri en 18 mánaða nema við sérstök tilefni, eins og þegar ferðast skal til landa þar sem tíðni mislinga er há. Óbólusettir einstaklingar á aldrinum 18 mánaða til 49 ára eru áfram hvattir til að láta bólusetja sig. Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis. 

Þær aðgerðir sem ráðist var í til að stöðva útbreiðslu mislinga hér á landi tókust mjög vel þökk sé starfsmönnum heilbrigðisstofnana og almenningi. Frá því að fyrsta tilfellið greindist hér á landi um miðjan febrúar hafa um það bil 6.749 einstaklingar verið bólusettir, 3.415 eru á aldrinum 0-17 ára, þar af 2.718 börn undir 18 mánaða aldri, og 2.572 á aldrinum 18-49 ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert