Verðlaunaði hugbúnað sem vaktar svefnvenjur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt höfundum Lokbrár.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt höfundum Lokbrár. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Verkefnið Lokbrá skaraði að mati dómnefndar fram úr á norrænu heilsuhakkaþoni sem haldið var í Háskólanum í Reykjavik um nýliðna helgi. Þar kepptust teymi frá fjölmörgum löndum við að vinna úr gögnum um heilsu, heilsufar og félagslega stöðu með það að markmiði að þróa tæknilausnir sem miða að því að auka lífsgæði og velferð notenda.

Metfjöldi liða og einstaklinga óskaði eftir þátttöku og voru um 70 þátttakendur úr þeim hópi valdir til keppni. Á sunnudag var 21 verkefni síðan kynnt fyrir sérstakri dómnefnd og þau bestu verðlaunuð.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, veitti því verkefni sem best þótti stuðla að aukinni félagslegri velferð verðlaun fyrir hönd félagsmálaráðuneytisins. Taldi dómnefnd verkefnið Lokbrá skara fram úr, en Lokbrá er hugbúnaður sem vaktar svefnvenjur fólks og gerir það verkum að hægt er að bregðast við ef eitthvað fer úrskeiðis. Hugmyndin er að hægt verði að tengja Lokbrá við snjallsíma eða snjallúr.

Ráðherra sagði ljóst að nýsköpun muni þegar til framtíðar er litið gegna afar mikilvægu hlutverki í öflugri velferðarþjónustu. „Það er virkilega gaman að sjá þá hugmyndaauðgi og metnaðarfullu sýn sem fram kom í keppninni. Við þurfum að vera vakandi fyrir því að styðja við nýjar hugmyndir og tæknilausnir því þær geta orðið til þess að auka lífsgæði okkar allra," var haft eftir Ásmundi Einari í frétt á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert