„Það var ekkert drama, allt gekk upp og meira til, og aðsóknin hefur aldrei verið meiri,“ segir Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, í samtali við mbl.is. Hátíðinni lauk í gær og það má heyra á Kristjáni að hann er í skýjunum með nýafstaðna hátíð.
Kristján segir að samkvæmt mati Vegagerðarinnar hafi um 4.500 manns komið keyrandi norður Ísafjarðardjúp fyrir og um helgina. Þá segist hann aldrei hafa séð fleira fólk á hátíðarsvæðinu, en hann hefur komið að skipulagningu hátíðarinnar mörg síðustu ár.
Aðspurður segir Kristján að ýmislegt nýtt hafi verið á hátíðinni í ár, og nefnir í því dæmi sjoppuna sem komið var á fót fyrir hátíðina, Aldrei-mathöll. „Hún sló algjörlega í gegn,“ segir Kristján.
Spurður hvort nokkuð vesen hafi verið á hátíðargestum segir Kristján svo ekki hafa verið. Menn hafi meira að segja hagað sér svo vel að þegar lögregluþjónar komu á svæðið stuttu fyrir lokun í gærkvöld, og Kristján hafi spurt þá hvort allt væri með kyrrum kjörum, hafi einn þeirra svarað: „Jújú. Ég ætlaði bara að ná að panta mér plokkfisk áður en sjoppan lokaði.“
Þegar Kristján lýkur símtalinu við blaðamann er hann í þann mund að hefja páskaveislu fyrir poppara hátíðarinnar þar sem auðvitað er boðið upp á páskalamb, samkvæmt venju. Hann kveður glaður í bragði, spenntur fyrir hátíðinni að ári.