Rannsókn lokið í Dalshrauni

Eftir helgi munu Sævar og hans fólk setjast yfir rannsóknargögnin.
Eftir helgi munu Sævar og hans fólk setjast yfir rannsóknargögnin. mbl.is/Árni Sæberg

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lauk síðdegis rannsókn á vettvangi þar sem elds­voðinn varð í Dals­hrauni í Hafnar­f­irði í gær. Vettvangurinn hefur nú verið afhentur tryggingafélagi. Þetta staðfestir Sæv­ar Guðmunds­son aðal­varðstjóri í Hafnarfirði í samtali við mbl.is.

Sævar segir að ekkert hafi bent til þess að saknæm háttsemi hafi átt sér stað. Eldsupptök eru enn ókunn.

Ekki vitað hvort húsnæðið er viðurkennt

Frá því var sagt í gær að ekki lægi fyrir hvort húsnæðið þar sem eldurinn kviknaði væri viðurkennt húsnæði eða ekki. Aðspurður sagðist Sævar ekki vita hvort svo væri eða ekki en sagðist vita að gistiaðstaða hefði verið um nokkurn tíma í húsinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert