Tæknideild rannsakar vettvanginn

Slökkviliðið að störfum uppi á þaki húsnæðisins í gær.
Slökkviliðið að störfum uppi á þaki húsnæðisins í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar í dag vettvanginn þar sem eldsvoðinn varð í Dalshrauni í Hafnarfirði í gær.

Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri staðfestir þetta en segir óljóst hvenær hún mun ljúka störfum. Óljóst er hvað olli eldsvoðanum.

25 herbergi eru á efri hæð byggingarinnar og að sögn Sævars urðu umtalsverðar skemmdir á þeim. Einhvern tíma mun taka að lagfæra húsnæðið.

Um 50 manns bjuggu í herbergjunum og var stór hluti þeirra fjarverandi vegna páskafrís þegar eldsvoðinn varð. Innan við 20 manns fengu gistiúrræði í nótt í gegnum Rauða krossinn, auk þess sem einhverjir fengu gistingu hjá vinum og ættingjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert