Umræður um þriðja orkupakkann halda áfram á þingfundi á morgun, mánudag. Sé mælendaskrá fyrir dagskrárliðinn skoðuð vekur athygli að þingmenn Miðflokksins eru þeir einu sem hyggjast taka til máls, en þeir héldu uppi málþófi um orkupakkann aðfaranótt fimmtudags.
Á mælendaskrá eru þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sem heldur sína 5. ræðu í þessari annarri umræðu um þriðja orkupakkann. Þar á eftir koma þeir Jón Þór Þorvaldsson með sína þriðju ræðu, Birgir Þórarinsson og Bergþór Ólason með sínar fjórðu ræður og loks Karl Gauti Hjaltason með sína þriðju.
Miklar umræður og deilur hafa verið um þriðja orkupakkann undanfarin misseri, en málið var afgreitt úr utanríkismálanefnd síðastliðinn mánudaginn og lagt fram til síðari umræðu í þinginu.
Greiddi fulltrúi Miðflokksins í utanríkismálanefnd atkvæði gegn því að málið yrði afgreitt úr nefndinni en aðrir flokkar greiddu atkvæði með því.