Innkalla Nutra B Sterkar

Fæðubótaefnið B Sterkar – B vítamín extra sterkar hefur verið …
Fæðubótaefnið B Sterkar – B vítamín extra sterkar hefur verið innkallað. Ljósmynd/Aðsend

Aðföng hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað fæðubótarefnið Nutra B Sterkar – B vítamín extra sterkar, vegna þess að magn B6-vítamíns í ráðlögðum daglegum neysluskammti fæðubótarefnisins fer yfir efri þol- eða öryggismörk sem ákvörðuð eru af vísindanefndum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). 

Ráðlagður daglegur neysluskammtur fyrir fæðubótarefnið er 1-2 töflur á dag en í einni töflu eru 15 mg af B6-vítamíni. Samkvæmt áliti vísindanefnda EFSA eru efri þol-/öryggismörk fyrir B6-vítamín 25 mg á dag fyrir fullorðna.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Nutra.
Vöruheiti: B Sterkar – B vítamín extra sterkar.
Strikanúmer: 5690350054645.
Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.
Nettómagn: 180 töflur.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
Dreifing: Varan var til sölu í verslunum Bónuss, Hagkaupa og Super1 fram til 20. maí 2019.

Viðskiptavinum sem keypt hafa fæðubótarefnið Nutra B Sterkar – B vítamín extra sterkar er bent á að neyta þess ekki og farga, en einnig er hægt að skila því í versluninni þar sem það var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert