Hafa rætt orkupakkann í um 50 klukkutíma

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hefur ekki hugsað sér að …
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, hefur ekki hugsað sér að beita þeirri heimild að stöðva umræðuna um þriðja orkupakkann. mbl.is/Hari

Þriðja kvöldið í röð stefnir í að næturumræður fari fram á Alþingi um þriðja orkupakkann. Síðustu sólarhringa hafa nær eingöngu þingmenn Miðflokksins haldið ræður í síðari umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þriðja orkupakkann og þessa stundina eru eingöngu þingmenn Miðflokksins á mælendaskrá.

Þingmenn flokksins, ásamt þingmönnum Flokks fólksins, þvertaka fyrir að um málþóf sé að ræða en þingmenn annarra flokka, sem styðja þingsályktunartillöguna, eru undirbúnir fyrir aðra langa nótt í þingsalnum, þar á meðal Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar.

Þing­fund­i var slitið á ní­unda tím­an­um í morg­un, en þá hafði umræða um þriðja orkupakk­ann staðið í 19 klukku­stund­ir, en þing­fund­ur hófst klukk­an 13.30 í gær.

Þingfundur hófst aftur í dag klukkan 15 og samtals hefur þriðji orkupakkinn því verið ræddur í tæpar 50 klukkustundir. Þar af hafa þingmenn Miðflokksins talað í um fjörutíu klukkustundir.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagði í dag að hann hafi ekki hugsað sér að beita þeirri heimild að stöðva umræðuna. Forsætisnefnd ákvað í dag að bæta við þing­fund­um síðdeg­is á fimmtu­dag og föstu­dag ef á þarf að halda, þar sem fjölmörg önnur mál eru enn á dagskrá þingsins fyrir sumarfrí.

Umræðan um þriðja orkupakkann mun halda áfram á meðan þingmenn óska eftir að taka til máls, en þá verður hægt að greiða atkvæði um þingsályktunartillöguna.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert