Eyrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans. Hún hefur þegar hafið störf.
Eyrún hefur síðastliðin tæp sjö ár haft umsjón með og ritstýrt Sunnudagsblaði Morgunblaðsins en starfaði þar áður sem ráðgjafi árum saman þar sem hún kom að ýmiss konar verkefnastjórnun, markaðs- og útgáfumálum og stefnumótunarvinnu. Hún starfaði einnig á RÚV á árunum 2004 til 2006 og var meðal annars einn þáttastjórnenda Kastljóss á því tímabili. Eyrún er með BA-gráðu í í hagfræði með sagnfræði sem aukagrein. Þá hefur hún lokið meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, að því er segir á vef Kjarnans.
Eyrún tekur við starfi framkvæmdastjóra af Þórði Snæ Júlíussyni sem gegnt hefur því samhliða ritstjórastarfi frá byrjun árs 2018. Hann mun nú einbeita sér alfarið að ritstjórn Kjarnans.