Brot 180 ökumanna mynduð í Garðabæ

13% þeirra sem fóru um svæðið á einum klukkutíma óku …
13% þeirra sem fóru um svæðið á einum klukkutíma óku yfir afskiptahraða og eiga því væntanlega von á hraðasekt í pósti. mbl.is/Arnþór

Brot 180 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Hnoðraholti. Sá sem hraðast ók var á 120 kílómetra hraða, en hámarkshraði á svæðinu er 80 km/klst.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að 1.336 ökutæki hafi keyrt þarna fram hjá á einni klukkustund fyrir hádegi og því hafi 13% þeirra verið að keyra of hratt, yfir hinum svokallaða afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst, tuttugu og einn ók á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 120, sem áður segir.

„Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð,“ segir í tilkynningu lögreglu um hraðamælinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert