Fer yfir 25 stig í dag

Kort/Veðurstofa Íslands

Hiti fór yfir 20 stig austanlands í gær og gera spár ráð fyrir að hann gæti farið yfir 25 stig á stöku stað þar í dag. Um helgina er útlit fyrir kólnandi veður og að á Norðausturlandi fari hitinn ekki yfir 7 stig.

„Suðvestlægar áttir í dag með súld eða rigningu vestan til á landinu. Þykknar upp austan til síðdegis, suðlægari vindur og fer að rigna á mest öllu landinu. Hiti fór yfir 20 stig austanlands í gær og gera spár ráð fyrir að hann gæti farið yfir 25 stig á stöku stað þar í dag. Á morgun verður svo vestlægari átt, skýjað að mestu og einhverjar skúrir og áfram svipaður hiti. Um helgina er þó útlit fyrir norðvestlæga átt og svalara veður. Bjart með köflum suðvestanlands, skýjað norðaustan til en úrkomulítið. Líkur eru þá á að hitinn á Norðausturlandi fari ekki mikið yfir 7 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurspá fyrir næstu daga

Vestan og suðvestan 5-10 m/s. Súld eða rigning vestan til á landinu. Þykknar heldur upp fyrir austan síðdegis á morgun, snýst í suðlægari átt og fer að rigna á mest öllu landinu. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast austast. Vestlægari átt á morgun. Skýjað að mestu og stöku skúrir. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Suðvestan 5-10 m/s og dálítil væta, en úrkomulítið síðdegis og léttir til austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Suðaustur- og Austurlandi. 

Á laugardag:
Norðaustanátt 5-13, hvassast norðvestan til og við suðausturströndina. Skýjað en úrkomulítið. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. 

Á sunnudag:
Norðaustan 5-13, hvassast norðvestan til. Dálítil rigning framan af degi sunnan til, en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti 8 til 13 stig sunnan- og vestanlands, en 3 til 6 stig norðaustan til. 

Á mánudag:
Norðlæg átt 8-13 við NA-ströndina, en annars hægari breytileg átt. Skýjað með köflum, þurrt að kalla og hlýnar lítillega. 

Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt og úrkomulítið, en rigning sunnanlands síðari hluta dags. Hlýnar í veðri. 

Á miðvikudag:
Útlit fyrir sunnanátt og rigningu, en léttara yfir og þurrt norðan og austan til. Hiti breytist lítið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert