Ekkert barn á spítala vegna E. coli

E. coli faraldurinn mun eiga rætur á bænum Efstadal II …
E. coli faraldurinn mun eiga rætur á bænum Efstadal II í Bláskógabyggð. mbl.is/Hari
Enginn greindist með E. coli í dag að því er fram kemur á vef landlæknis. Þar segir að sýni frá níu einstaklingum sem grunaðir voru um E. coli sýkingu hafi verið rannsökuð og greindist enginn með sýkinguna. Því er heildarfjöldi barna sem greinst hafa frá því E. coli faraldurinn hófst, enn 19.
Þá kemur fram á vef Landlæknis að ekkert barn sé nú inniliggjandi á Barnaspítala Hringsins af völdum STEC E. coli, en undanfarna daga hafa þar verið þrjú börn. 
„Enn er beðið er eftir frekari staðfestingu á greiningu hjá barninu í Bandaríkjunum sem grunað er um alvarlega E. coli sýkingu,“ segir á vef Landlæknis, en búist er við að faraldurinn sé að renna sitt skeið. Fram kemur á vefnum að þessi vika muni að líkindum skera úr um það. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert