Engin E. coli tilfelli í dag

E coli baktería
E coli baktería Ljósmynd/National Institute of Allergy and Infectious Diseases

Engin tilfelli af E. coli greindust í dag eftir að rannsökuð voru saursýni frá 15 einstaklingum sem borist hafa undanfarna daga. Þriggja ára drengur sem var rannsakaður fyrir helgi og grunaður um að vera með sýkingu reyndist vera sýktur af E. coli. 

Þetta kemur fram á vef landlæknaembættis.

Drengurinn hafði borðað ís í Efstadal II fyrir um þremur vikum og hafði auk þess umgengist sýktan einstakling fyrir 1-2 vikum. Um er að ræða þriggja og hálfs árs gamlan barn sem heilsast vel og verður í eftirliti á Barnaspítala Hringsins.

Bandaríska barnið grunað um E. coli sýkingu og fjallað hefur verið um á undanförnum dögum er hins vegar ekki með E. coli sýkingu samkvæmt rannsóknum í Bandaríkjunum.

Alls hafa því 22 einstaklingar greinst með E. coli sýkingu, þar af tveir fullorðnir og 20 börn. Annar hinna fullorðnu borðaði ís í Efstadal 8. júlí en enginn annar tengist Efstadal eftir 4-5. júlí en þá hófust fyrri aðgerðir sem miðuðu að því að rjúfa smitleiðir.

Seinni aðgerðir í Efstadal hófust 18-19. júlí og eftir þann tíma hafa engir einstaklingar greinst.

Rannsóknir í Efstadal hafa enn ekki sýnt með óyggjandi hætti hvernig E. coli sýkillinn barst í einstaklingana sem veiktust. Allir einstaklingarnir áttu það hins vegar sameiginlegt að hafa borðað ís í Efstadal fyrir utan eitt barn sem virðist hafa smitast af systkini.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert