Þýskur ferðamaður fótbrotnaði illa

Frá Herðubreiðarlindum.
Frá Herðubreiðarlindum. mbl.is/Una Sighvatsdóttir

Hálendisvakt björgunarsveita á svæðinu norðan Vatnajökuls var kölluð út fyrir hádegi vegna konu sem hafði slasast rétt við Herðubreiðarlindir.

Þegar komið var að konunni, sem var í stórum hóp þýskra ferðamanna, kom í ljós að hún virtist illa fótbrotinn, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Brotið var rétt af og búið var um konuna. Verið er að flytja hana niður á þjóðveg en aksturinn þangað tekur um tvær klukkustundir. Þar tekur sjúkrabíll við henni og kemur henni á sjúkrahús, líklega á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert