Ríkisstjórnin styrkir Reykjavíkurleikana

mbl.is/Hjörtur

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að veita fjögurra milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu til Reykjavíkurleikanna sem haldnir verða árið 2020, en Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur ásamt sérsamböndum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Reykjavíkurborg haldið Reykjavíkurleikana frá árinu 2008.

„Um er að ræða tíu daga íþróttahátíð þar sem keppt er í um 20 einstaklingsgreinum. Góð reynsla er komin á fyrirkomulag mótsins sem hefur farið stækkandi og hefur það dregið að fjölmarga öfluga erlenda keppendur. Mótið er meðal annars haldið til þess að auka samkeppnishæfni íslenskra íþróttamanna og draga úr ferðakostnaði þeirra,“ segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þá segir að margir mótshlutar Reykjavíkurleikanna hafi fengið vottun alþjóðasamtaka og geti keppendur því unnið sér inn stig á mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert