Lögreglan lýsir eftir Kristófer Breka

Síðast er vitað um ferðir Kristófers Breka í Breiðholti fyrir …
Síðast er vitað um ferðir Kristófers Breka í Breiðholti fyrir um viku síðan. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kristófer Breka Berglindarsyni, 19 ára. Kristófer er grannvaxinn, 187 cm á hæð, með blá augu og stutt dökkt hár.

Síðast er vitað um ferðir hans í Breiðholti fyrir um viku. Ekki er vitað hvort Kristófer hafi bifreið til umráða.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristófers, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112, eða með því að hafa samband í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Uppfært: Kristófer er kominn í leitirnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert