Heildarendurskoðun á löggjöf um jarðir og fasteignir

Heildarendurskoðunin hefur það markmið að styrkja lagaumhverfi um eignarhald og …
Heildarendurskoðunin hefur það markmið að styrkja lagaumhverfi um eignarhald og nýtingu jarða og fasteigna. mbl.is

Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum í morgun um heildarendurskoðun á löggjöf um jarðir og fasteignir, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur beitt sér fyrir og hefur það markmið að styrkja lagaumhverfi um eignarhald og nýtingu jarða og fasteigna, m.a. auka yfirsýn stjórnvalda í málaflokknum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Gert er ráð fyrir því að endurskoðunin taki til jarðalaga nr. 81/2004, skipulagslaga nr. 123/2010 og laga nr. 19/1966 um eignarrétt og afnot fasteigna, ásamt fleiri lögum á þessu sviði.

Fyrirhugað er að lagafrumvörpin sem um ræðir verði kynnt í kringum komandi áramót, en þau heyra undir dómsmálaráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert