Hornafjörður fær 33 milljónir vegna flóða

Mikið tjón varð vegna úrkomuveðurs og flóða á Suðaustur- og …
Mikið tjón varð vegna úrkomuveðurs og flóða á Suðaustur- og Austurlandi í september og október 2017. Ljósmynd/Hreggviður Símonarson/Landhelgisgæslan

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita sveitarfélaginu Hornafirði fjárstyrk til að takast á við óvænt útgjöld og brýn verkefni við endurreisn í kjölfar úrkomuveðurs, vatnavaxta og flóða sem urðu á Suðaustur- og Austurlandi í lok september og byrjun október 2017.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, en tillagan var lögð fram af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra.

Styrkurinn nemur alls 33,2 milljónum króna og er meðal annars veittur vegna tjóns sem varð á göngubrú yfir Hólmsá við Fláajökul, sem hrundi í flóðunum, og skemmdum sem urðu á leiðum að Miðfelli, Jökulfelli, Haukafelli, Hoffellsjökli, Heinabergi og Fláajökli, yfir Kolgrímu og út í Skógey.

Með styrkveitingunni sem samþykkt var í morgun hefur samtals rúmlega 350 milljónum króna verið veitt úr ríkissjóði vegna úrkomuveðurs og flóða á Suðaustur- og Austurlandi í september og október 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert