Samið um styttri vinnuviku

Kjara­deil­unni hafði ekki verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara en samn­ingsaðilar fengu …
Kjara­deil­unni hafði ekki verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara en samn­ingsaðilar fengu aðstöðu hjá embætt­inu vegna kjaraviðræðnanna. mbl.is/Golli

Helstu tíðindi kjarasamnings milli fimm stéttarfélaga innan Bandalags háskólamanna og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs eru að vinnutími verður styttur og er breytingin í takt við það sem samið var um á almennum vinnumarkaði í vor. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þar segir enn fremur að markmið styttingarinnar sé að bæta vinnustaðamenningu og starfsumhverfi starfsfólks. Einnig felist tækifæri til umbóta í starfsemi ríkisins. Samið var um breytingar á sumarorlofi en þær eru sagðar nýtast ungu fólki best. 

Fram undan er áframhaldandi vinna ríkisins við gerð samninga við önnur stéttarfélög ríkisstarfsmanna. Alls gerir ríkið um 60 kjarasamninga við um 100 stéttarfélög með um 20 þúsund félagsmenn.

Félögin sem samið var við um helgina eru Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélag lögfræðinga. Í þeim eru samtals um 2.300 félagsmenn sem starfa á velflestum stofnunum ríkisins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert