Skólahald aflagt í Korpuskóla næsta haust

Kennsla verður lögð niður í Korpuskóla þar til börnum í …
Kennsla verður lögð niður í Korpuskóla þar til börnum í Staðarhverfi í Grafarvoginum á aldrinum 6-12 ára hefur fjölgað upp í 150. Ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að frá og með næsta hausti verði þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. Borgaskóli og Engjaskóli verði fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli verði sameinaður unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10 bekk.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg sem segir gert ráð fyrir að hver skólanna rúmi á þriðja hundrað nemendur.

Til stendur að leggja áherslu á hugmyndafræði nýsköpunar, frumkvöðlafræði og skapandi hugsun í öllum starfsháttum í Víkurskóla. Mun nýsköpun í skóla- og frístundastarfi þá jafnframt fela í sér áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð, teymisvinnu og lausnamiðað nám.  

Í tilkynningunni segir að tillagan feli í sér að skólahald verði aflagt í Korpuskóla þar til börnum í Staðahverfi, sem eru á aldrinum 6-12 ára, hefur fjölgað í 150. Þegar þeim fjölda hefur verið náð verður ákvörðun um skólahald í hverfinu endurskoðuð í samstarfi við foreldra og íbúa. Í dag eru 59 nemendur í Korpuskóla og hefur þeim fækkað úr 140 nemendum árið 2012, en skólinn er byggður fyrir 170 nemendur.

Leggur skóla- og frístundaráð til að innleiðingarhópar verði skipaðir „til að tryggja markvisst og farsælt breytingaferli og verði skipan þeirra afgreidd á fundi ráðsins 10. desember næstkomandi“. Enn fremur er í greinargerð með tillögunni lagt til að skipaður verði einn hópur fyrir hvern skóla og það frístundaheimili eða félagsmiðstöð sem honum er næst, sem og einn yfirhópur sem tryggi að samfella skapist í skipulagi skólahalds, frístundastarfs og samgöngumála.

Tillagan felur einnig í sér að tryggja verði samgöngubætur „til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og til að tengja betur öll hverfi í norðanverðum Grafarvogi. Göngu- og hjólaleiðir verði bættar til að gera skóla-, frístunda- og íþróttastarf aðgengilegra fyrir íbúa í öllum norðanverðum Grafarvogi. Undirgöng eða ámóta örugg göngu- og hjólaleið verði sett við Strandveg/Víkurveg á milli Garðsstaða og Breiðavíkur. Sett verði upp gönguljós og þrenging götu við Mosaveg. Unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir,“ segir í samþykktinni.

Vilji meirihluta skóla- og frístundaráðs stendur þá til að skólahúsnæðið í Korpu nýtist áfram í skóla- og frístundastarfi og hafi foreldrar þannig val um skóla- og frístundaúrræði fyrir börn sín. Verður í því sambandi m.a. leitað eftir áhuga sjálfstætt starfandi skóla. 

Á fundi skóla- og frístundaráðs var lagt fram álit borgarlögmanns um að ekki sé nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi áður eða samhliða því að skólahaldi verði hætt í Korpuskóla. Með hliðsjón af fyrirhuguðum úrbótum á samgöngum milli hverfa er, að hans mati, ekki fyrir hendi skaðabótaábyrgð af hálfu borgaryfirvalda gagnvart íbúum Staðahverfis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert