Starfa ekki lengur eftir samningi við SÍ

Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara.
Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara.

Samskipti sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands eru í uppnámi eftir að stofnunin tilkynnti einhliða 8. nóvember að sjúkraþjálfarar væru bundnir af ákvæðum rammasamnings næstu sex mánuði — þrátt fyrir að samningurinn hafi runnið út 31. janúar síðastliðinn.

Sjúkraþjálfarar sætta sig ekki við að starfa áfram á samningi sem ekki hefur verið leiðréttur í 9 mánuði. Þetta gerist í framhaldi af því að boðað var opið útboð á þjónustu sjúkraþjálfara, sem þeir telja að verði skaðlegt fyrir sjúkraþjálfun í landinu, að því er segir í tilkynningu frá félagi sjúkraþjálfara. 

 „Framganga Sjúkratrygginga ber keim af því að verið sé að refsa sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfurum fyrir að hafa efasemdir um að það sé rétt að taka þátt í opnu útboði, sem var ávísun á fullkomna óvissu,” segir Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara, í fréttatilkynningu.

Sjúkratryggingar frestuðu útboði til 15. janúar eftir að mikil gagnrýni hafði komið fram um það hvernig að því var staðið. „Undir kvöld í gær barst síðan bréf frá forstjóra S.Í. Það reyndist  innihalda rangfærslur og hótanir í garð sjúkraþjálfara, sem ævinlega hafa hagað málflutningi sínum og ákvörðunum með hagsmuni skjólstæðinga í huga. Forstjórinn fullyrðir þvert á móti að sjúkraþjálfarar séu skeytingarlausir um hagsmuni sjúkratryggðra. Við undrumst þau ummæli, svo ekki sé meira sagt,“ segir enn fremur í fréttatilkynningu. 

„Þrátt fyrir að sjúkraþjálfarar hafi boðist til að vera áfram í rafrænum samskiptum við S.Í., skjólstæðingum til hagræðis, véfengdi stofnunin rétt þeirra til að fara af samningi og hafa engar ráðstafanir verið gerðar til að gera aðilum kleift að vera í rafrænum samskiptum um endurgreiðsluhluta sjúklinga,“ segir í fréttatilkynningu en þar er haft eftir Unni: „Við hörmum auðvitað þau óþægindi sem þessi ágreiningur við S.Í. getur haft á skjólstæðinga okkar. Sjúkraþjálfarar starfa því frá 12. nóvember samkvæmt eigin verðskrá og geta ekki haft milligöngu um sjálfvirka endurgreiðslu  með rafrænum hætti. Þess í stað verðum við að beina skjólstæðingum okkar til S.Í. varðandi endurgreiðslur, sem þeir eiga áfram rétt á lögum samkvæmt,” segir Unnur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert