Aksturslagið kom upp um hann

Lögreglan handtók ökumann í Vallahverfinu í Hafnarfirði um eitt í nótt. Maðurinn var bæði undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Aksturslag hans var mjög rásandi enda mjög ölvaður, segir í dagbók lögreglunnar.

Nóttin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var mjög róleg og er enginn vistaður í fangageymslu í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert