Minningarsjóður Jennýjar Lilju styrkir þyrlusveit LHG

Frá afhendingu gjafanna í dag.
Frá afhendingu gjafanna í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar tók í dag við gjöfum frá minningarsjóði Jennýjar Lilju: fjórum lyfjadælum og tveimur blóð- og vökvahiturum, í flugskýli Landhelgisgæslunnar.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni vegna gjafarinnar segir að um hjartnæma stund hafi verið að ræða.  

Lyfjadælurnar gera þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar kleift að skammta lyfjum með meiri nákvæmni en það er nauðsynlegt þegar flytja þarf alvarlega veik og slösuð börn. Vökvahitararnir gerir áhöfnunum kleift að hita vökva og blóð upp en það getur skipt sköpum fyrir slasaða, ekki síst slösuð börn sem mega illa við hitatapi við erfiðar aðstæður.

Foreldrar Jennýjar Lilju stofnuðu minningarsjóð í hennar nafni eftir að hún lést af slysförum 24. október 2015. Fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2019 setti minningarsjóðurinn sér það markmið að safna fyrir fjórum lyfjadælum sem nýtast þyrlusveitinni. Markmiðið náðist og gott betur og því var tveimur blóð- og vökvahiturum bætt við í samráði við sveitina. Um er að ræða stærstu einstöku úthlutun sem minningarsjóðurinn hefur veitt.

Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar veitti gjöfunum viðtöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert