Lýsa yfir stuðningi við kjarabaráttu BÍ

Fundur í deilu BÍ og SA hjá ríkissáttasemjara. Mynd úr …
Fundur í deilu BÍ og SA hjá ríkissáttasemjara. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag fréttamanna lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu Blaðamannafélags Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í kvöld.

Segir þar að félagið styðji „heilshugar verkfallsaðgerðir Blaðamannafélagsins og treystir því að ritstjórar og eigendur fjölmiðla virði lögboðin verkföll þeirra.“

Segir í yfirlýsingunni að laun blaðamanna á Íslandi séu almennt langt frá því að vera í samræmi við vinnutíma, álag í starfi og þá ábyrgð sem blaðamenn bera. „Fjölmiðlar gegna grundvallarhlutverki í lýðræðissamfélagi í því að upplýsa almenning um það sem gerist í samfélaginu og veita ráðandi öflum aðhald. Það geta þeir varla gert ef hæfir fréttamenn hrekjast úr starfinu vegna lágra launa, líkt og gerist trekk í trekk.“

Kominn sé tími til að störf blaðamanna verði metin að verðleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert