Opnað hefur verið á umferð um Hverfisgötuna á ný. Þetta staðfestir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar í samtali við mbl.is.
Til stóð að opna fyrir umferð á ný á morgun, en það gerðist degi fyrr en til stóð. Einhver lokafrágangur kann þó enn að vera eftir, en hann mun að sögn Jóns Halldórs ekki hindra umferð.
Framkvæmdir hafa staðið yfir við Hverfisgötu frá því í maí og hafa rekstaraðilar og íbúar við götuna ítrekað látið í ljós óánægju með tafir á framkvæmdum. Sagði Benóný Ægisson, formaður íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur, fyrr í þessum mánuði í samtali við Morgunblaðið fólk vera orðið langþreytt á tíðum framkvæmdum og því mikla raski sem þeim fylgi.
Þá sendi umboðsmaður borgarbúa Reykjavíkurborg almenn tilmæli vegna framkvæmda í miðborginni og á öðrum viðkvæmum rekstrarsvæðum, vegna erinda frá rekstaraðilum í grennd við framkvæmdastaði í miðborginni, sem áttu það sammerkt að lýsa neikvæðum upplifunum af framkvæmdunum, sem jafnvel hafi leitt til þess að þeir hafi þurft að hætta rekstri.
Í tilmælum umboðsmanns, sem m.a. voru vegna framkvæmdanna við Hverfisgötu og Óðinstorg, var því beint til borgarinnar að hefja „skilvirkt og raunverulegt samráð“ við hagsmunaaðila og framkvæmdaaðila með því að kalla alla saman til fundar áður en verkið hefst, með eins góðum fyrirvara og unnt er.
„Mikilvægt er að hagsmunaaðilum gefist kostur á að skilji hver fer með hvaða hlutverk og hver ber ábyrgð á hvaða verkþætti og þeim áhrifum sem hann kann að hafa á hagsmunaaðila,“ sagði í tilmælunum.