Þorsteinn Már stígur tímabundið til hliðar

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Forstjóri og stjórn Samherja hafa komist að samkomulagi um að forstjóri félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson, stígi tímabundið til hliðar þar til helstu niðurstöður yfirstandandi innri rannsóknar á ætluðum brotum dótturfélags í Namibíu liggja fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, hefur tekið tímabundið við stöðu forstjóra Samherja. Á komandi dögum mun Björgólfur leggja áherslu á að hitta starfsfólk og helstu hagsmunaaðila.

Í tilkynningunni segir að rannsókn lögmannsstofunnar Wikborg Rein, sem Samherji réð til að rannsaka málið, muni halda áfram og heyrir rannsóknin beint undir stjórn félagsins.

„Hjá Samherja starfa um 850 manns á Íslandi og fjöldi manns erlendis. Við tökum þetta mikilvæga skref til að tryggja sem best hlutleysi rannsóknarinnar. Við viljum stunda heiðarleg viðskipti og leggjum okkur fram um að starfa í samræmi við gildandi lög og reglur,“ er haft eftir Eiríki S. Jóhannssyni, stjórnarformanni Samherja.

Björgólfur Jóhannsson hefur tekið tímabundið við stöðu forstjóra Samherja, en …
Björgólfur Jóhannsson hefur tekið tímabundið við stöðu forstjóra Samherja, en hann stýrði Icelandair áður. mbl.is/Styrmir Kári

Segir jafnframt að engin yfirvöld hafi haft samband við Samherja, en að félagið muni starfa með þeim stjórnvöldum sem kunna að sýna starfsemi fyrirtækisins áhuga, hvort sem um sé að ræða á Íslandi, í Namibíu eða annars staðar.

„Samherji gegnir mikilvægu hlutverki í sjávarútvegi á alþjóðavísu og berum við ábyrgð gagnvart okkar fólki og viðskiptavinum. Ég er dapur yfir þessum kringumstæðum en ég mun gera mitt besta til að gæta hagsmuna Samherja og starfsfólksins,” er jafnframt haft eftir Björgólfi.

Þá segir að ekki sé frekari umfjöllunar af hálfu Samherja að vænta fyrr en staðreyndir úr ofangreindri rannsókn taki á sig skýrari mynd.

Ekki tilbúinn að ræða málið að svo stöddu

Björgólfur Jóhannsson sagðist ekki ætla að tjá sig neitt um innkomu sína við fjölmiðla að svo stöddu, er blaðamaður mbl.is náði af honum tali skömmu eftir að tilkynning Samherja fór í loftið um kl. 10 í morgun.

„Tilkynningin er eins og hún er og ég mun ekkert segja meira í bili,“ sagði Björgólfur í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert