Gul viðvörun í gildi

Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun er í gildi við Breiðafjörðinn en suðaustanstormur, 20-25 m/s, er á norðanverðu Snæfellsnesi. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, ferðalangar sýni aðgát.

„Suðaustanhvassviðri eða -stormur sunnan og vestan til og vætusamt en dregur úr vindi og styttir að mestu upp eftir hádegi, fyrst vestast á landinu þegar skilin ganga yfir, en bætir þá í vind með slyddu eða rigningu fyrir austan.

Hlýnar í veðri og hiti yfirleitt 0 til 6 stig síðdegis í dag. Útlit fyrir fínasta veður um helgina. Verðum í óstöðugu lofti á morgun með suðvestanátt og dálitum éljum og kólnar smám saman, en léttir til um landið austanvert. Á sunnudag liggur hæðarhryggur yfir landinu með froststillum og sólríku veðri um mestallt land og má þá búast við talsverðu frosti inn til landsins,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðaustan 15-23 sunnan og vestan til með talsverðri rigningu eða slyddu. Mun hægari og lengst af léttskýjað norðaustanlands. Snýst í suðvestan 5-10 með stöku éljum um landið vestanvert eftir hádegi, en gengur í sunnan 8-15 með slyddu eða rigningu fyrir austan, en úrkomuminna norðaustan til. Hlýnandi veður, hiti 0 til 6 stig síðdegis. Suðvestan 5-13 á morgun og dálítil él, en léttir til um landið austanvert og kólnar í veðri.

Á laugardag:

Suðvestan 8-13 m/s og él, en hægari og léttskýjað um landið A-vert. Frost 0 til 7 stig, en yfirleitt frostlaust við suður- og vesturströndina.

Á sunnudag:
Fremur hæg breytileg átt og léttskýjað, en snýst í vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestan til um kvöldið. Frost 0 til 10 stig í innsveitum norðaustanlands.

Á mánudag og þriðjudag:
Suðaustan 10-18 og úrkomulítið um landið suðvestanvert, hvassast við suðvesturströndina og hiti 0 til 6 stig. Mun hægari og yfirleitt bjart norðan- og austanlands og vægt frost.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg átt og stöku él, en þurrt og bjart suðvestan- og vestanlands. Heldur kólnandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert