Sósíalistar álykta vegna Samherjamálsins

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Allar stjórnir Sósíalistaflokks Íslands samþykktu í kvöld ályktun vegna Samherjamálsins, sem send hefur verið á fjölmiðla. Þar segir að flokkurinn vilji ávarpa landsmenn, „í tilefni af afhjúpun á glæpum Samherja í Namibíu“ og því hvernig eigendum fyrirtækisins hafi tekist að „sölsa undir sig auðlindir þarlendis, á Íslandi og víðar.“

„Það sem þér ofbýður er grimmd auðvaldsins. Krafa almennings hlýtur að vera: Auðvaldið burt! Það sem þér ofbýður er aumingjaskapur stjórnmálaelítunnar. Krafa almennings hlýtur að vera: Elítuna burt! Það sem þér ofbýður er algjört valdaleysi alþýðunnar í samfélaginu: Krafa almennings hlýtur að vera: Valdið til fólksins!“ segir í ályktun flokksins, sem þau Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar, Andri Sigurðsson, formaður félagsstjórnar og María Pétursdóttir, formaður málefnastjórnar rita undir.

Þar segir jafnframt að lausnin gegn aðráni auðvaldsins, svikum elítunnar gagnvart alþýðunni og valdaleysi almennings kallist sósíalismi.

„Gott samfélag verður aðeins byggt upp með lýðræði sem hvílir á jöfnuði, mannhelgi og samkennd. Auðvaldið rífur niður samfélagið. Sósíalisminn byggir það upp,“ segir í ályktun Sósíalistaflokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert