Lögðu hald á afla og skotvopn veiðimanna

Ljósmynd/Lögreglan

Tveir veiðimenn sem lögreglan á Norðurlandi eystra ræddi við um síðustu helgi reyndust ekki hafa gild veiðikort. Lagt var hald á afla þeirra og skotvopn.

Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar að hún hafi haldið uppi öflugu eftirliti með rjúpnaveiðum eins og alltaf og rætt hafi verið við marga veiðimenn um síðustu helgi sem voru að koma af veiðum. Flestir reyndust vera með öll sín mál í lagi.

Lögreglan hvetur veiðimenn til að gæta þess að vera með öll leyfi í lagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert