Lögreglan leitar manns vegna rannsóknar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni er maður­inn beðinn um að hafa sam­band við lög­reglu­stöðina á Hverf­is­götu 113-115 í Reykja­vík, eða í síma lög­regl­unn­ar 444-1000.

Þó myndin sé óskýr telur lögregla að maðurinn sé klæddur …
Þó myndin sé óskýr telur lögregla að maðurinn sé klæddur í svarta, rennda íþróttapeysu (hvítan bol innan undir), svartar gallabuxur, strigaskó og sé með eyrnarlokk í hægra eyra. Ljósmynd/Lögreglan

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert