Haldi hækkun fasteignagjalda undir 2,5%

Reykjanesbær, Akranes og Vestmannaeyjar eru sögð einu sveitarfélögin sem veita …
Reykjanesbær, Akranes og Vestmannaeyjar eru sögð einu sveitarfélögin sem veita umtalsverðar lækkanir á skatthlutfallinu.

Félag atvinnurekenda, Húseigendafélagið og Landssamband eldri borgara hafa sent frá sér ályktun þar sem þau ítreka áskorun sína til sveitafélaga frá því í síðasta mánuði um að sveitarfélögin lækki álagningarprósentu fasteignagjalda á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði.

Þetta kemur fram í frétt sem birt er á vef FA. Er þar vakin athygli á að nú þegar fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaganna standi yfir hafi 7 af 12 stærstu sveitarfélögum landsins lækkað álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði og sex á atvinnuhúsnæði.

„Samtökin fagna því að sum sveitarfélög lækka álagningarprósentur, en vekja jafnframt athygli á því að fæst lækka þau álagninguna nógu mikið til að tekjur þeirra af fasteignagjöldum hækki ekki um meira en 2,5%,“ segir í fréttinni. Eru Akranes, Reykjanesbær og Vestmannaeyjar sögð einu sveitarfélögin sem veiti umtalsverðar lækkanir á skatthlutfallinu.

Taka FA, Húseigendafélagið og LEB undir málflutning Alþýðusambandsins, sem hefur minnt sveitarfélögin á yfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga frá því í vor, sem gefin var til að greiða fyrir kjarasamningum á almennum vinnumarkaði síðastliðið vor.

Í yfirlýsingu sinni beindi ASÍ þeim tilmælum til sveitarfélaganna að gjöld á þeirra vegum hækki ekki umfram 2,5% á árinu 2020.

Segjast samtökin þrenn vera sammála því að sveitarfélög „geti ekki hlaupist undan ábyrgð á því að viðhalda verðstöðugleika í landinu og varðveita þann árangur sem náðist í kjarasamningunum. Hækkun fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði vegna hærra fasteignamats kemur beint niður á öllum almenningi í landinu, ýmist með því að fólk þarf að greiða hærri gjöld af eignum sínum eða hærri leigu fyrir leiguhúsnæði. Hækkun fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði knýr fyrirtækin til að hækka verð á vörum og þjónustu, sem einnig bitnar á öllum almenningi.“

FA, Húseigendafélagið og Landssamband eldri borgara skori því á sveitarfélögin að gera það sem þarf áður en fjárhagsáætlanir verða endanlega samþykktar til að tryggja að fasteignagjöld hækki ekki um meira en 2,5%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert