Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til um fimmleytið í morgun vegna elds sem hafði komið upp í bíl á Reykjanesbrautinni til móts við Vífilsstaði.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var bíllinn á ferð þegar glóð kom upp í bílnum og reykur. Hann segir eldinn þó aldrei hafa orðið mikinn og gekk greiðlega að slökkva hann.
Var bíllinn dreginn á brott að því loknu.