Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar segja að uppsagnir gærdagsins hafi verið harkalegar, fyrirvaralausar og án fullnægjandi skýringa. Þetta kemur fram í ályktun frá starfsmönnum stofnunarinnar.
Þar segir að 14 starfsmönnum hafi verið sagt upp í gær. Þremur hafi verið boðið nýtt starf, sem þeir höfnuðu.
Starfsmennirnir segja að stjórnvöld beri ábyrgð á alvarlegri stöðu stofnunarinnar og hafa starfsmenn verulegar áhyggjur af framtíð Hafró.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri stofnunarinnar, sagði í samtali við mbl.is í gær að vilji væri fyrir því að gera yfirstjórn Hafró skilvirkari og hagkvæmari.