Furða sig á „rangfærslum og ósamræmi VR“

Ölgerðin segir að VR hafi í dag staðfest þann skilning …
Ölgerðin segir að VR hafi í dag staðfest þann skilning Ölgerðarinnar að sú vinnutímastytting sem Ölgerðin hefði samið um við starfsmenn sína fyrir allmörgum árum „gangi mun lengra“ en sú vinnutímastytting sem samið var um í lífskjarasamningnum í vor. Segir Ölgerðin þetta „í beinu ósamræmi“ við orð framkvæmdastjórans í kvöldfréttum Stöðvar 2, um að fyrirtækið sé að reyna að koma sér undan skyldum sínum. mbl.is/Árni Sæberg

Ölgerðin segist harma rangfærslur um fyrirtækið sem komið hafi fram í máli Stefáns Sveinbjörnssonar framkvæmdastjóra VR í kvöldfréttum Stöðvar 2, en þar sagði Stefán Ölgerðina vera eina fyrirtækið sem reynt hafi að færa fólk til annars stéttarfélags til að komast hjá því að starfsmennirnir fengju kjarasamningsbundna vinnutímastyttingu.

Ölgerðin segir að VR hafi í dag staðfest þann skilning Ölgerðarinnar að sú vinnutímastytting sem Ölgerðin hefði samið um við starfsmenn sína fyrir allmörgum árum „gangi mun lengra“ en sú vinnutímastytting sem samið var um í lífskjarasamningnum í vor. Segir Ölgerðin þetta „í beinu ósamræmi“ við orð framkvæmdastjórans í kvöldfréttum Stöðvar 2, um að fyrirtækið sé að reyna að koma sér undan skyldum sínum.

„Í fréttum síðustu daga hefur komið fram gagnrýni á fyrirtækið þar sem því hefur ranglega verið haldið fram að Ölgerðin hafi verið að reyna að komast hjá styttingu vinnutíma samkvæmt kjarasamningum. Hið rétta í málinu er að Ölgerðin hefur um árabil verið með styttri vinnuskyldu í dreifingardeild fyrirtækisins, vöruhúsi og fjölda annarra deilda, töluvert styttri en lífskjarasamningurinn kveður á um, og gildir einu hvort starfsmenn séu í Eflingu eða VR. Ölgerðin hefur skriflega staðfestingu frá VR um að ofangreindir starfsmenn njóti nú betri kjara hvað vinnutíma og laun varðar en lífskjarasamningurinn kveður á um. Því furðar Ölgerðin sig á rangfærslum framkvæmdastjóra VR. Vinna síðustu daga hefur falist í samræmingu innan deilda,“ segir í tilkynningu frá Ölgerðinni, sem barst fjölmiðlum í kvöld.

Starfsmenn „beðnir afsökunar á orðalaginu“

Ölgerðin segir að í síðustu viku hafi verið unnið að slíkri samræmingu meðal starfsmanna lagers og bílstjóra. „Því miður var of harkalega orðað bréf afhent átta starfsmönnum og voru þeir beðnir afsökunar á orðalaginu á föstudag í síðustu viku. Slíkt bréf er alls ekki í anda Ölgerðarinnar, sem ætíð hefur kappkostað að koma fram af virðingu við starfsfólk sitt og hefur til að mynda gefið starfsmönnum sínum frí á aðfangadag, gamlársdag og allan daginn 2. janúar um nokkurra ára skeið, sem er vel umfram alla samninga.“

Ölgerðin segir að starfsmenn allra annarra deilda innan fyrirtækisins hafi þegar samþykkt vinnutímastyttingu samkvæmt lífskjarasamningnum. Tilgangurinn með samræmingu hafi verið „að freista þess að allir starfsmenn hverrar deildar fyrirtækisins tækju kjör og réttindi eins stéttarfélags enda mikilvægt ef breytingar verða á samningum að sama gangi yfir alla.“

„Af um 25 bílstjórum Ölgerðinnar eru 6 í VR sem taka réttindum og skyldum VR. Af um 140 starfsmönnum verksmiðju og vöruhúss voru um 3 sem tóku réttindum og skyldum VR en langflestir hinna eru í Eflingu. Ölgerðin óskaði eftir því að þeir starfsmenn sem eru í VR myndu framvegis taka kjarabreytingum eftir samningum Eflingar,“ segir í tilkynningu Ölgerðarinnar, sem segist virða félagafrelsi, starfsmönnum hafi verið frjálst að greiða félagsgjöld í þau stéttarfélög sem þeir kjósa. 

„Ölgerðin virðir alla kjarasamninga, réttindi og skyldur sinna starfsmanna og harmar rangfærslur þar um sem birst hafa,“ segir Ölgerðin að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert