Einkaspæjari rannsakar hvarf Jóns Þrastar

Tíu mánuðir eru liðnir frá því Jón Þröstur Jónsson hvarf …
Tíu mánuðir eru liðnir frá því Jón Þröstur Jónsson hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi. Skjáskot

Systir og unnusta Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi fyrir tíu mánuðum, hafa ráðið írskan einkaspæjara til að rannsaka hvarfið. 

Anna Hildur Jónsdóttir, systir Jóns Þrastar, segir í samtali við The Irish Sun að fjölskyldan sé ákveðin í að leita svara. Önnu Hildi grunar að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við hvarf Jóns Þrastar þar sem hún telur það óhugsandi að hann hafi „flúið“ líf sitt á Íslandi. 

Jón Þröstur fór til Dublin til að taka þátt í pókermóti í byrjun febrúar. Unnusta hans, Jana Guðjónsdóttir, var með í för og höfðu þau hugsað sér að skoða borgina saman að mótinu loknu. Rann­sókn máls­ins hef­ur lítið sem ekk­ert miðað áfram frá því björg­un­ar­sveit kembdi leit­ar­svæði í borg­inni í byrj­un mars og ábend­ing barst um að Jón Þröst­ur hefði mögu­lega ferðast með leigu­bíl. 

„Við verðum að komast að því hvað kom fyrir Jón. Börnin eiga rétt á að vita það, hugsanirnar og spurningarnar munu fylgja okkur alla ævi,“ segir Anna Hildur. Börn og stjúpbörn Jóns Þrastar eru fjögur talsins. 

Telur að Jón Þröstur sé látinn

„Hann ætlaði sér svo margt, við vitum að hann flúði ekki,“ segir Anna Hildur en hún hefur á tilfinningunni að gengi Jóns Þrastar í pókerspilinu hafi ekki verið samkvæmt áætlun og mögulega hafi hann lent í slæmum félagsskap í kjölfarið. „Kannski vann hann of mikið og þeim líkaði það ekki. Ég held að eitthvað hafi komið fyrir hann. Það er mín tilfinning,“ segir Anna Hildur sem er ansi hrædd um að bróðir hennar sé látinn. 

Írska lögreglan hefur rannsakað hvarf Jóns Þrastar frá upphafi en lítið hefur farið fyrir rannsókninni síðustu mánuði. Í vor opnaði fjöl­skylda hans heimasíðu þar sem finna má all­ar upp­lýs­ing­ar um Jón. Fjöl­skyld­an er gjör­sam­lega ráðþrota vegna hvarfs Jóns Þrast­ar en hyggst ekki gef­ast upp.

Einkaspæjarinn Brady hefur áður rannsakað mannshvörf, til að mynda hvarf írsku stúlkunnar Amy Fitzpatrick sem hvarf á Spáni árið 2008, þá 15 ára. Hennar er enn leitað. 

Brady hvetur almenning til að setja sig í samband við hann ef fólk hefur upplýsingar, sérstaklega ef um er að ræða upplýsingar sem fólk er hrætt við að segja lögregluyfirvöldum. Hægt sé að leita til hans í trúnaði með því að senda honum tölvupóst á liam@liambrady.ie.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert