Staða rektors HÍ auglýst laus til umsóknar

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

Embætti rektors Háskóla Íslands hefur verið auglýst laust til umsóknar. Þetta kemur fram í auglýsingu á Starfatorgi, en mennta- og menningarmálaráðherra skipar háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs.

Jón Atli Benediktsson, núverandi rektor Háskóla Íslands, var skipaður í júlí 2015, en skipunartímabil hans rennur út 1. júlí 2020. Hann upplýsti í viðtali við mbl.is í vikunni að hann myndi sækja um embættið að nýju.

Í auglýsingunni kemur fram að rektor sé yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum háskólans. Hann ber ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi háskólans, þ.m.t. ráðningar- og fjármálum einstakra fræðasviða og stofnana. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Á milli funda háskólaráðs fer rektor með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans.

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands. mbl.is/Ómar

Embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi á viðurkenndu fræðasviði Háskóla Íslands, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Háskólaráð ákvarðar hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi, sbr. 2. tl. 6.gr. reglna háskólans. Einungis þeir sem þegar hafa fengið formlegan hæfnisdóm sem prófessor við viðurkenndan háskóla áður en umsóknarfrestur rennur út teljast uppfylla skilyrði um prófessorshæfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert