Stjarna Björgvins fjarlægð

Stjarnan var afhjúpuð með viðhöfn í sumar.
Stjarnan var afhjúpuð með viðhöfn í sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Hafnarfjarðarbær hefur látið fjarlægja stjörnu sem var sett í gangstéttina fyrir framan Bæjarbíó til heiðurs tónlistarmanninum Björgvini Halldórssyni. Stjarnan var afhjúpuð með viðhöfn í sumar. 

Greint er frá þessu í fundargerð bæjarráðs Hafnarfjarðar, sem fundaði í gær. Þar kemur fram að viðskiptaráðið í Hollywood í Kaliforníu hafi fengið veður af þessari athöfn og í bréfi, sem er dagsett 15. ágúst sl., er tekið fram að stjörnunni svipi mjög í útliti til þeirra sem er að finna á Frægðargötunni í Hollywood (e. Hollywood Walk of Fame). Þetta hafi því verið gert í heimildarleysi og þess krafist að bærinn láti af öllu slíku þegar í stað. Rúv greindi fyrst frá.

Björgvin  segir í samtali við mbl.is að hann hafi aðeins heyrt af þessu fyrir nokkrum dögum. „Stjarnan þótti of lík Hollywood-stjörnunni og þess vegna var hún fjarlægð og henni breytt,“ vildi Björgin láta hafa eftir sér, en unnið er að því að setja upp nýja stjörnu með breyttu sniði. 

Björgvin Halldórsson með stjörnuna sem er nú búið að fjarlægja.
Björgvin Halldórsson með stjörnuna sem er nú búið að fjarlægja. mbl.is/Árni Sæberg

Í svarbréfi bæjaryfirvalda, sem er dagsett 3. desember, er útskýrt hvernig hugmyndin kom til, þ.e. frá rekstraraðilum Bæjarbíós sem vildu heiðra íslenska tónlistarmenn. Þeir hafi viljað láta setja stjörnu í stéttina og hafi þurft að fá leyfi Hafnarfjarðarbæjar til þess. Bæjarráðið hafi tekið vel í þá hugmynd og samþykkt hana, en tekið er fram að aðeins ein stjarna hafi verið lögð í stéttina í júlí sl. þegar Björgvin var heiðraður. 

Bæjarráðið segir að það hafi ekki verið ætlunin að notfæra sér skrásett vörumerki eða hugverkaréttindi í heimildarleysi eða brjóta gegn slíkum réttindum. Það hafi ekki heldur verið ætlun Bæjarbíós með gjörningnum. 

Þó er tekið fram að umrætt vörumerki sé ekki skráð hér á landi samkvæmt íslenskum lögum. Bent er á að Ísland sé ekki hluti af Evrópusambandinu, heldur taki aðeins upp hluta regluverks ESB í gegnum EES-samninginn. Engin dómafordæmi séu því til staðar eða löggjöf sem tryggi réttindi viðskiptaráðsins hér á landi, þannig að það geti höfðað mál til að krefjast þess að notkun verði stöðvuð eða hægt að fara fram á bætur. 

Bæjarráðið segir aftur á móti að það muni virða hugverkaréttindi viðskiptaráðsins og vilji ekki brjóta gegn þeim og því sé búið að fjarlægja stjörnu Björgvins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert