Maður féll fram af svölum í Úlfarsárdal

Maður féll fram að svölum í Úlfarsárdal og er lögregla …
Maður féll fram að svölum í Úlfarsárdal og er lögregla að rannsaka tildrög þess. Fimm hafa verið handteknir. mbl.is/Alexander Gunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með mikinn viðbúnað í Úlfarsárdal í Reykjavík vegna atviks sem tilkynnt var lögreglu á fjórða tímanum í dag. Maður féll fram af svölum og hafa fimm einstaklingar verið handteknir í tengslum við málið að sögn lögreglu. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort maðurinn sé lífs eða liðinn.

„Málið er í rannsókn og lögregla er að vinna á vettvangi. Fimm aðilar hafa verið handteknir í tengslum við málið. Það er ekki hægt að segja til um tildrög á þessum tímapunkti,“ segir Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.

Samkvæmt lögreglumanni á vettvangi var sérsveit ríkislögreglustjóra ekki kölluð til eins og áður hafði komið fram. Lögregla þurfti að brjóta upp lás íbúðarinnar á 2. hæð hússins til að komast þar inn.

Fréttin var uppfærð kl. 16.46.

mbl.is/Alexander Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert