Óvíst með akstur strætó eftir klukkan þrjú

Strætó verður líklega ekki á leið síðdegis í dag.
Strætó verður líklega ekki á leið síðdegis í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvísýnt verður með akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu eftir klukkan 15:00 í dag. Fylgst verður náið með veðri og Strætó mun senda út frekari upplýsingar eftir hádegi.

Þetta kemur fram á Twitter-síðu Strætó en appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15:00 í dag.

Enn fremur kemur fram á Twitter-síðunni að akstursþjónusta fatlaðra mun hætta akstri klukkan 15:00 í dag.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert