15 stiga frost á morgun

Kort Veðurstofa Íslands

Spáð er áframhaldandi norðlægri átt fram yfir helgi og verður hún sums staðar hvöss. Mjög er að kólna í veðri og er spáð allt að fimmtán stiga frosti á morgun. 

„Éljagangur, einkum bundinn við norðanvert landið og á köflum austan til líka, en bjart með köflum sunnan- og vestanlands. Kólnar smám saman og fremur kalt um helgina. Dregur svo úr frosti í næstu viku,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Spáin fyrir næstu daga

Norðan og norðaustan 8-15 m/s en hvassari á stöku stað. Él N- og A-til, en bjart með köflum á S- og V-landi. Frost 0 til 8 stig og herðir frekar á frosti í kvöld.
Heldur hægari á morgun og dregur úr éljum. Frost 4 til 15 stig, mildast við S-ströndina.

Á föstudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s, skýjað og dálítil él á N- og A-landi. Bjart með köflum annars staðar, en stöku él syðst á landinu. Frost 5 til 15 stig.

Á laugardag:
Norðlæg átt og stöku él með N-ströndinni, annars víða bjart. Áfram kalt í veðri.

Á sunnudag og mánudag:
Stíf norðaustanátt með ofankomu, einna helst norðvestan til, en þurrt S-til á landinu. Minnkandi frost.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Líkur á áframhaldandi norðlægri átt með éljum við N- og A-ströndina, en annars þurrt. Frost 0 til 8 stig, mildast við ströndina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert