Hönnun tveggja áfanga borgarlínu hafin

Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða …
Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða um 13 kílómetrar, annars vegar Hamraborg — Hlemmur og hins vegar Ártún — Hlemmur. Ljósmynd/Aðsend

Verkefnastofa borgarlínu hefur skipað hönnunarteymi fyrir fyrstu tvo áfanga borgarlínu sem mun vinna frumdrög að fyrstu framkvæmdum. Vinna er þegar hafin og er gert ráð fyrir að tillögur verði tilbúnar í vor. 

Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða um 13 kílómetrar, annars vegar Hamraborg — Hlemmur og hins vegar Ártún — Hlemmur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá verkefnastofu borgarlínu. 

„Það er einkar ánægjulegt að ná þessu hönnunarteymi saman, allt úrvals fólk og tilbúið í verkefnið. Þegar afraksturinn liggur fyrir  í vor þá mun fólks átta sig betur á hvernig Borgarlínan mun hafa jákvæðar breytingar á borgarumhverfið með bættum aðstæðum fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi. Jafnframt mun á þeim tíma liggja fyrir tillaga að leiðarkerfi, greining á vagnakostum m.t.t. loftslagsmála, greining á rekstarkostnaði og mat á hagrænum sem samfélagslegum þáttum,“ segir Hrafnkell Ásólfur Proppé, verkefnastjóri borgarlínu.

Hönnunarteymið skipa Hallbjörn R. Hallbjörnsson, Vegagerðinni, Kristinn H. Guðbjartsson, Verkís, …
Hönnunarteymið skipa Hallbjörn R. Hallbjörnsson, Vegagerðinni, Kristinn H. Guðbjartsson, Verkís, Ingólfur Ingólfsson, Hnit, Svanhildur Jónsdóttir, VSÓ, Stefán Gunnar Thors, VSÓ, Edda Ívarsdóttir, umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Hrafnkell Ásólfur Próppé, verkefnastofu borgarlínu (VB). Neðri röð: Birkir Ingibjartsson, umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Hildur Inga Rós Raffnsöe, umhverfissvið Kópavogs, Walter Hook BRTPlan. Bryndís Friðriksdóttir og Lilja G. Karlsdóttir báðar frá VB. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert