Bar við knöppum tíma

Bifreiðin var mæld á 142 km hraða.
Bifreiðin var mæld á 142 km hraða. Skjáskot af Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í gærmorgun erlendan ferðamann fyrir að aka bílaleigubifreið sinni á 142 km hraða á Mýrdalssandi fyrir austan Vík í Mýrdal. Hálkublettir voru í vegaköntum á þessum slóðum þar sem brotið átti sér stað.

Kvaðst ferðamaðurinn vera að drífa sig í Jökulsárlón en hann væri í dagsferð frá Reykjavík og því hefði hann knappan tíma í dagsbirtunni.

Ökumaðurinn þarf að greiða ríflega sekt fyrir hraðakstursbrotið eða 150.000 krónur. Aðspurður kvaðst ökumaður ekki hafa ekið í vetrarfærð áður og lofaði að aka miðað við aðstæður hér eftir, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert