Bátur sökk í Hofsóshöfn

Trillan sökk í höfninni.
Trillan sökk í höfninni. Ljósmynd/Björgunarsveitin Grettir

Bátur sökk í Hofsóshöfn á miðvikudagsmorgun í óveðrinu sem gekk yfir landið.

„Hann yfir-ísaðist. Það var annar tæpur líka. Við náðum að berja á honum áður en hann fór líka,“ segir Elvar Jóhannsson, formaður björgunarsveitarinnar Grettis.

Spurður segir hann að svona geti gerst í veðri eins og hefur verið undanfarið. „En þetta hefur ekki skeð í mörg ár í Hofsósi. Ég man ekki til þess.“

Björgunarsveitin hefur haft í nógu að snúast, eins og svo margar aðrar á landinu síðustu sólarhringa. Hún hefur unnið með björgunarsveitunum á Sauðárkróki og Varmahlíð, með aðgerðastjórn á Sauðárkróki, við að leysa hin ýmsu verkefni.

Björgunarsveitarmenn að störfum við að ná ísnum af bát í …
Björgunarsveitarmenn að störfum við að ná ísnum af bát í höfninni. Ljósmynd/Björgunarsveitin Grettir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert