„Grunnkerfin verða að vera í lagi“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. mbl.is/Árni Sæberg

„Við verðum að gera skýlausa kröfu um örugga og trausta innviði um allt land. Grunnkerfin verða að vera í lagi og það er okkar sameiginlega verkefni núna að byggja þá upp og viðhalda svo sómi sé af.“

Þetta kemur fram í föstudagspistli Drífu Snædal, forseta ASÍ.

Hún segir að eftir veðurhamfarir vikunnar séum við enn og aftur minnt á hvað við eigum stórkostlegar björgunarsveitir og sjálfboðaliða sem ávallt eru til taks.

Auk björgunarsveita leggja margir starfsmenn orkufyrirtækja og fleiri stofnana nú nótt við dag við erfið skilyrði til að koma á rafmagni. Fyrir allt þetta frábæra fólk erum við þakklát og sendum því okkar bestu strauma,“ skrifar Drífa.

Græðgi og vilji til að misnota fólk til staðar

Hún fjallar auk þess um aðbúnað verkafólks frá A-Evrópu og sagði að það hefði vakið athygli og undrun fjölmiðlafólks frá austurhluta álfunnar að verkafólk þaðan gæti ekki verið öruggt um að fá sanngjörn laun og góðan aðbúnað í velferðarþjóðfélaginu Íslandi.

Ég svaraði því til að þar sem græðgi og vilji til að misnota fólk er til staðar getur verkafólk ekki verið óhult. Við hins vegar reynum eftir fremsta megni að þétta í götin og gæta þess að það borgi sig ekki að misnota fólk í vinnu. Að atvinnurekendur sem ætla sér að nýta sér fólk í bágri stöðu þurfi að gjalda fyrir það,“ skrifar Drífa.

Hún segir að við eigum að vera þakklát þeim sem hingað koma til að leggja hönd á plóg. Tilhugsunin um að einhver þeirra verði fyrir misnotkun í vinnu sem jaðri á köflum við þrældóm sé ömurleg.

Eitt af stóru verkefnunum á borði aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda er einmitt að breyta lögum og verklagi þannig að eftirlit verði meira, aðgengi að upplýsingum betra, þjónusta við fólk af erlendum uppruna bætt og síðast en ekki síst, að viðurlög við launaþjófnaði og kjarasamningsbrotum verði þannig að það sé einfaldlega ekki þess virði fyrir þannig innréttaða atvinnurekendur að brjóta á fólki. Við hljótum að geta sammælst um slíkt og hrint í framkvæmd betri umgjörð utan um heilbrigðan vinnumarkað á nýju ári. Þessa innviði þarf líka að bæta,“ skrifar Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert