Heitavatnsleki í Breiðholti

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að fjölbýlishúsi við Suðurhóla í Breiðholti í morgun vegna heitavatnsleka.

Að sögn varðstjóra barst útkallið rétt fyrir klukkan sjö og eru slökkviliðsmenn á staðnum við að hreinsa upp.

Talið er að lekið hafi úr ofni íbúðarinnar en vatn barst einnig í íbúðina fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert